Chef Hafthor Sveinsson Uppskirft - Silfur restaurant, Reykjavik, Iceland (Icelandic) |
Written by Debra C. Argen | |||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Matseðill
Humar rúlla með steiktum humri, rabbarbara og humarkjarna,
Humar rúlla með steiktum humri, rabbarbara og humarkjarna
Humarrúlla: Brick deig er lagt á borð og penslað með helmingnum af hreinsaða smjörinu. Humarinn er pillaður og helmningnum er raðað þvert yfir deigið. Skerið kross á tómatinn og hann settur ofan í sjóðandi vatn í 20 sek og er síðan settur í klakabað. Skinnið flisjað af tómatnum og svo skorinn í strimla ásamt döðlunum og basilnum. Þessu er raðað ofan á humarinn rúllað upp. Síðan er þetta steikt á pönnu í sirka 30 sekúndur á hverri hlið. Afgangurinn af humrinum er steiktur upp úr restinni af hreinsaða smjörinu og hvítlauknum. Rabbarbari: Rabbarbarinn er settur í sykurinn og látin eldast í 1 klst við vægan hita um 50° celsíus. Kálfasoð: Kálfasoðið og skelinn af humrinu sett saman í pott soði niður um ¾ . Síðan er smjörinu hrært hægt út í soðið, án þess að sjóði.
Léttsaltaður þorskur með kardimommugljáa og blómkálsmauki
Aðferð: Söltun: Þorskurinn snyrtur til. Appelsínubörkur raspaður út í saltið og sykurinn. Appelsínan skorin í appelsínulauf og appelsínusafinn kreistur útí og þorskinum velt upp úr þessu og látinn liggja í 2 klst. Blómkálsmauk: Blómkál hreinsað. Blómkálið er soðið í vatni í 30 mín. Blómkálið er maukað í mixer með mascarpone og truffluoliu. Aspas: Aspasinn er hreinsaður og soðinn í saltvatni í 8 mín. Síðan er hann steiktur á pönnu með smjöri Kardimommugljái: Kálfasoð soðið niður um helming. Smjöri hrært hægt út í soðið, án þess að sjóði. Bragðbætt með kardimommum. Silfur restaurant er opinn Mánudaga til föstudaga frá 11.30 - 14.00, og Sunnudaga til fimmtudaga frá 18.00 - 22.30, Föstudaga og laugardaga frá 18.00 - 23.30.
Read the article on Silfur restaurant in the Restaurants section and also in Chefs' Recipes where Chef Halfhor Sveinsson provides his delicious recipes in English.
Read other articles on Iceland in the Destinations, Hotels and Resorts, Restaurants, Chefs' Recipes, Spas, Fashion, and Adventures sections.
|